Aron Kale
2018

 
 
Aron Kale

Aron Kale

Aron Kale var valinn listamaður hátíðarinnar árið 2018.

List Arons Kale er drifin af áhuga á manneskjunni og tilveru hennar. Mannamyndir eru í forgrunni í list hans og hafa sterka skírskotun í japanskan poppkúltúr líkt og anime og manga.

Aron er fæddur árið 1989 í Reykjavík en hefur búið frá 10 ára aldri á Egilsstöðum, þar sem hann býr enn og starfar. Þar stundaði hann nám við Menntaskólann á Egilsstöðum á starfsbraut og útskrifaðist árið 2012. Aron hefur sett svip sinn á List án landamæra á Austurlandi, haldið fjölda einkasýninga og tekið þátt í samsýningum. Þá sýndi Aron á LungA Art Festival á Seyðisfirði árið 2016 með þeim Daníel Björnssyni og Odee.

Ferlið á bakvið verk Arons er um margt merkilegt. Hann er virkur í sköpun sinni, afkastamikill, og vinnur öll verk í einni beit — pensillinn er aldrei mundaður tvisvar við sama verk. Litaval hans er afgerandi og litskrúðugt, dregur fram sterkar andstæður með vali sínu sem skapar dýpt. Andlitin sem prýða verk hans eru svipsterk og sótt bæði í poppmenningu, eins og bíómyndir og sjónvarpsþætti, en ekki síður til fjölskyldu og vina Arons.

Aron er listamaður í stöðugri mótun og hefur undanfarið látið að sér kveða sem DJ listamaður, eins og hann kallar sig.

- Texti eftir Ingu Björk Margrétar Bjarnadóttur

 
 

 

Brot af verkum Arons Kale