Atli Már Indriðason
2019
Atli Már Indriðason var valin listamaður hátíðarinnar árið 2019.
Atli Már fæddist árið 1993. Hann útskrifaðist úr diplómanámi Myndlistaskólans í Reykjavík vorið 2017 og hefur sótt vinnustofur í myndlist við sama skóla frá árinu 2013. Hann hefur einnig sótt námskeið í leiklist og var einn af meðlimum hljómsveitarinnar Gunnar and the Rest. Atli hefur tekið þátt í fjölda samsýninga á síðustu árum. Árið 2018 hélt hann einkasýningu á Þjóðminjasafninu sem hluti af List án landamæra. Í maí 2019 hélt Atli Már einkasýningu í Listsal Mosfellsbæjar ásamt því að opna einkasýningu í Safnasafninu á Akureyri.
Atli Már er afkastamikill listamaður. Hann nýtir flestar sínar frístundir til þess að teikna í skissubækurnar sínar. Verk Atla Más bera sterk höfundareinkenni hans. Þau eru litrík og lifandi og einkennast oftast af persónum og fígúrum. Ofurhetjur, bíómyndir, teiknimyndir og ævintýri eru alla jafna viðfangsefni Atla Más. Í verkum hans má glögglega sjá hversu víðtæka þekkingu hann hefur á þessum ævintýraheimum. Oft málar hann ofurhetju ásamt öllum hennar fylgihlutum eða fígúrur sem einungis helstu áhugamenn þekkja. Hann málar stjórnklefa geimskipa, alla innviði bakarísins í Hálsaskógi eða heila senu úr bíómynd. Atli vinnur oftast tvívíð verk og notast við málningu, tréliti og tússliti. Hann býr einnig til skúlptúra úr hverju því sem hendi er næst. Í þessum skúlptúrum má greinilega sjá einlægan áhuga Atla á viðfangsefni sínu en þeir eru oftar en ekki framlenging á ofurhetjuheiminum - kíkir, sverð, grímur og tæki.
Túlkun Atla Más er einstök og hann hefur skapað sinn eigin stíl sem hefur þróast í gegnum árin. Allt frá unga aldri hefur Atli Már verið mjög listrænn og sem barn hlustaði hann mikið á tónlist og söng yfirleitt með hástöfum. Hann horfði mikið á bíómyndir og yfirleitt gat hann ekki setið kyrr og horft, heldur þurfti að klæða sig upp í búninga og taka fullan þátt í atburðarrásinni með söng og dansi. Þennan áhuga má skýrt sjá í verkum Atla Más og alla jafna, þegar hann útskýrir verkin fyrir áhorfendum, lifir hann sig inn í þau rétt eins og bíómyndirnar og lýsir verkum sínum með leikrænum tilþrifum.