Bjöllukórinn

Bjöllukórinn /ljósmynd: Owen Fiene

Bjöllukórinn /ljósmynd: Owen Fiene

 

Bjöllukór Tónstofu Valgerðar var stofnaður haustið 1997 af Valgerði Jónsdóttur. Í kórnum eru nú 12 meðlimir og sækja flestir þeirra einnig einkatíma í söng og hljóðfæraleik af ýmsu tagi í Tónstofunni. Listamennirnir eru: Ásdís Ásgeirsdóttir, Íris Björk Sveinsdóttir, Erna Sif Kristbergsdóttir, Hildur Sigurðardóttir, Rut Ottósdóttir, Edda Sighvatsdóttir, Ólafur Snævar Aðalsteinsson, Gauti Árnason, Gísli Björnsson, Auðun Gunnarsson, Halldóra Jónsdóttir og Ástrós Yngvadóttir.

Bjöllukórinn hefur eflst ár frá ári og tekið þátt í spennandi verkefnum sem útheimta margskonar færni. Efnisskrá kórsins er fjölbreytt og hljómur hans einstakur. Kórinn hefur gefið út tvo hljómdiska, annarsvegar Hljómfang árið 2012 og hinsvegar Hljómvang árið 2017.

Bjöllukórinn hefur komið fram með tónlistarmönnum á borð við Möggu Stínu, Sigur Rós og Retro Stefsson. Bjöllukórinn hefur einnig tekið þátt í mörgum samstarfsverkefnum og má þar nefna setningu Listahátíðar í Reykjavík árið 2014 í samstarfi við Högna Egilsson, verki Ólafs Ólafssonar og Libia Castro „Í leit að töfrum – Tillaga að nýrri stjórnarskrá fyrir lýðveldið Ísland“ og norrænu og baltnesku samstarfsverkefnunum  „Kenndu mér norræn og baltnesk barnalög“ og „Deilum menningararfinum í listsköpun“. Í september sl. tók Bjöllukórinn þátt í tíu ára afmælishátíð Pascal Norge. Bjöllukórinn hefur einnig hlotið fjölda viðurkenninga og var hann ásamt Tónstofunni handhafi kærleikskúlu Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra árið 2010.

Bjöllukórinn mun halda lokatónleika Listar án landamæra þann 19. október kl. 15:00 Gerðubergi. Á tónleikunum verða meðal annars flutt íslensk þjóðlög, lag eftir Atla Heimi Sveinsson, Jón Þórarinsson, Þorkel Sigurbjörnsson og Braga Valdimar Skúlason. Þátttakendur í ritlistasmiðju munu einnig lesa úr verkum sínum á tónleikunum. 

Að auki mun Bjöllukórinn taka þátt í opnunarhátíð Listar án landamæra Nánari upplýsingar um Bjöllukórinn má finna á heimasíðu hans: https://tonstofan.is/bjollukortonstofuvalgerdar