Halldóra Bjarnadóttir

 
 
Halldóra Bjarnadóttir

Halldóra Bjarnadóttir

Halldóra Sigríður Steinhólm Bjarnadóttir er fædd í Reykjavík þann 26. janúar 1989. Hún hefur alla tíð búið í vesturbæ Reykjavík fyrir utan eins árs skólagöngu í Illinois í Bandaríkjunum.


Halldóra lauk grunnskólaprófi frá Suðurhlíðaskóla 2005 og námi frá Iðnskólanum í Reykjavík árið 2009. Hún stundaði nám við Hússtjórnarskólann á Hallormsstað 2010 og lauk diplómanámi fyrir nemendur með þroskahömlun frá Háskóla Íslands 2013. Halldóra hefur sótt heklunámskeið og prjónanámskeið hjá Storkinum. Einnig námskeið í Tákn með tali hjá Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins.Frá árinu 2013 hefur Halldóra unnið hjá Ás styrktarfélagi. Hún vinnur einnig við handverk og selur vinnu sína hjá Handprjónasambandi Íslands.


Halldóra tók þátt í List án landamæra árið 2016 í fyrsta skipti og aftur árið 2018. Hún tók þátt í Hönnunarmars 2018 og var fyrsta fatlaða konan til að taka þátt í þeim viðburði. Fyrsta einkasýning Halldóru fór fram í Hannesarholti og bar heitið “Leikur að garni.” Næsta sýning Halldóru var samsýningin “Dimmalimm” á Hönnunarmars 2018, þar sýndi hún ásamt Ísaki Óla samstarfsverkefni sem gekk út á það að Halldóra litgreindi verk Ísaks Óla og túlkaði þau í handprjónaðar barnapeysur, húfur og dúkkuföt. Sýningar þessar vöktu mikla og verðskuldaða athygli. Sýning Halldóru “Dimmalimm” hlaut mikið lof á Hönnunarmars og óskaði Norræna húsið eftir því að sýningin yrði sett upp þar einnig. Sýningin var sett upp á barnabókasafninu á neðstu hæð hússins.


Helsta áhugamál Halldóru er hönnun og handverk. Hún prjónar einkum úr íslenskri ull og hefur gott auga fyrir litum, áferð og garni. Halldóra hefur einnig mikinn áhuga á söng og var meðlimur í Stúlknakór Reykjavíkur frá 10 ára aldri. Hún hefur einnig sungið með Cantabile kórnum, Kirkjukór Breiðholtskirkju og Kirkjukór Digraneskirkju. Hún sótti einsöngstíma hjá Ingunni Ragnarsdóttur en er nú í söngnámi hjá Margréti Pálmadóttur og tók þátt í einsöngstónfundi á hennar vegum í desember síðastliðnum.

Halldóra sýnir niðurstöður samstarfsverkefnis við Ýr Jóhannsdóttur þar sem þær vinna verk upp úr myndum eftir Láru Lilju Gunnarsdóttir sem verða einnig til sýnis á List án landamæra. Halldóra tekur einnig þátt í utan-dagskrá Listar án landamæra þar sem hún sýnir slaufur og höfuðföt í Hannesarholti.