listamaður hátíðarinnar 2022

 
 
 
 

List án landamæra verður haldin hátíðleg víðsvegar um landið í lok október og byrjun nóvember haustið 2022. Nánari staðsetningar og dagsetningar eru væntanlegar og munu birtast hér á vefnum.

Á hverju ári er valinn listamaður ársins sem fær sértakan heiðursess á hátíðinni það árið.

Öll geta tilnefnt listamann. Athugið að tilnefna má listafólk úr öllum listgreinum, hvort heldur sem er myndlist, tónlist, ritlist, leiklist, dans, hönnun o.s.frv.

Tilnefningar og ábendingar sendist í tölvupósti á info@listin.is í síðasta lagi 30. mars 2022.

Með tilnefningunni skal fylgja:

  • Yfirlit af a.m.k. fimm verkum eftir listamanninn. Hægt er að senda ljósmyndir, upptökur, texta eða hvað sem hentar því listformi sem listamaðurinn vinnur í.

  • Ferilskrá listamannsins sem rekur fyrri sýningar / verkefni og listræn störf

  • Nafn, símanúmer og netfang hjá listamanni og þeim sem tilnefnir.

Tilnefning telst einungis gild ef allar upplýsingar fylgja með.

Ertu með spurningu eða vantar þig aðstoð?

Hægt er að fá nánari upplýsingar og aðstoð með því að senda póst á info@listin.is.