Opið fyrir tilnefningar listafólks hátíðarinnar 2025
Vilt þú stinga upp á listafólki Listar án landamæra?
Veist þú um fatlaða listamanneskju eða hóp af listafólki sem á skilið að fá viðurkenningu fyrir listsköpun sína? Einhvern sem semur ljóð, spilar tónlist, leikur á sviði, dansar, býr til kvikmyndir eða málar málverk?
Sendu okkur tilnefningu! (það má tilnefna sjálfan sig!)
Það gerir þú með því að senda okkur póst á netfangið info@listin.is eða með því að fylla út eyðublaðið hér neðar á síðunni.
Ef þú vilt fá aðstoð við að tilnefna (stinga upp á) þá getur þú hringt í okkur í síma: 6918756 eða sent okkur tölvupóst á info@listin.is og við hjálpum þér!
Hægt er að tilnefna (stinga upp á) listafólki og listahópum í þessa tvo flokka:
Sviðslistir og tónlist
Leikarar, leikhópar, handritshöfundar, rithöfundar og ljóðskáld, danslistafólk, danshöfundar og danshópar, sirkus listafólk eða sirkus lista hópar, leikstjórar, kvikmyndagerðafólk og hópar, tónlistarfólk, hljómsveitir, kórar, plötusnúða (listinn er ekki tæmandi).
Myndlist og hönnun
Myndlistafólk, myndlistahópar og hönnuðir sem vinna með ólíkan efnivið eins og til dæmis olíu, akríl, keramík, tréverk, textíl, ljósmyndir og videóverk og annan efnivið (listinn er ekki tæmandi).
Dómnefnd mun sjá um að velja listafólk og tilkynna valið í apríl.
Með tilnefningunni skal fylgja:
Yfirlit af a.m.k. fimm verkum eftir listamanneskjuna eða listhópinn. Hægt er að senda ljósmyndir, hljóðupptöku, myndbönd, texta eða hvað sem hentar því listformi sem listamanneskjan eða listhópurinn vinnur í
Smá texti um listamanneskjuna eða listhópinn
Nafn, símanúmer og netfang hjá listamanneskju/listhópnum og þeim sem tilnefnir
Tilnefning telst einungis gild ef allar upplýsingar fylgja með.
Ertu með spurningar eða vantar þig aðstoð?
Ekki hika við að hafa samband við info@listin.is eða í síma 6918756
HÆGT ER AÐ TILNEFNA TIL OG MEÐ 30. mars
EÐA